Á liðnu ári .... og að komandi ári...
Á liðnu ári stendur víst eitthvað upp úr eins og til dæmis ágætis geðheilsa,útlandaferð með fjöskyldunni, að vera viðstödd fæðingu Gylfa Vals Ylfusonar, Blómaskreytinganámskeið fyrir kvenfélagið á kópaskeri og svo að sjálfsögðu mennirnir mínir tveir Eysteinn og Ívar en það skiptir ekki máli hvað þeir gera mér finnst þeir samt beztir.
Jólin eru búin að fara í veikindi af stærri gráðunni og ókunnum ástæðum en myndatökur og fleiri blóðprufur og meiri lækniskostnaður á eflaust eftir að lækna það.
Þröstur bróðir gladdi systur sína og var hjá mér ásamt spúsu sinni um jólinn og var gaman að hafa þau.
Eldaði skötu í fyrsta skipti alveg sjálf. fékk meiri segja Ívar til að borða skötuna sem og mágkonu mín og bróður og sjálfsögðu soninn.
Fjöldi barna fæddist í vinkonuhópnum á liðnu ári og ekki lítur út fyrir minni afkomu í ár.........
Ívar fékk litla systurdóttur í október og ég fæ svo eina áætlaða í mai. Og eftir minni bestu vitund er komið á dagskránna allavega eitt á mánuði frá mai og fram í ágúst.
Eysteinn verður stóri bróðir á árinu,,, en það mun ekki vera mér og Ívari að kenna að sinni heldur pabba hans og hans kærustu.
Þannig að nú þegar árið er ný byrjað er strax ljóast að það verður í meira lagi spennandi og margt að gerast og svo er bara að bíða og sjá ...........
3 athugasemdir